Hugbúnaðarprófarar

Íslandsbanka 28. Mar 2022 Fullt starf

Við hugbúnaðarþróun hjá Íslandsbanka starfar samhentur hópur sérfræðinga í vöruþróunarteymum sem mynduð eru af hugbúnaðarfólki ásamt sérfræðingum úr öðrum einingum bankans, unnið er eftir viðurkenndri aðferðafræði. Við myndum sterka liðsheild sem tekst á við krefjandi áskoranir og vinnum þétt með hagsmunaaðilum okkar innan sem utan bankans.

Við leitum að metnaðarfullum og faglegum sérfræðingi til að slást í hópinn og takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni. Stefnt er að því að ráða í deildirnar Dreifileiðir og Dagleg bankaviðskipti.

Helstu verkefni:

  • Umsjón sjálfvirkra og handvirkra (e. manual) prófana
  • Skilgreining og utanumhald prófanatilvika
  • Þátttaka í þróunarteymum og samvinna við viðskiptaeiningar
  • Önnur verkefni eftir samkomulagi
  • Þátttaka í teymisvinnu og teymisfundum
  • Reynsla af sjálfvirkum prófunum er stór kostur

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af hugbúnaðarprófunum nauðsynleg
  • Reynsla af Cypress, Postman, Karate eða öðrum prófunartólum æskileg
  • Þekking á aðgengisprófunum æskileg
  • Frumkvæði og drifkraftur
  • Skipulögð og öguð vinnubrögð
  • Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, verkfræði eða tengdum greinum
  • Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um starfið á veitir Jóhannes Örn Erlingsson forstöðumaður Dreifileiða, 777-5000, johannes.orn.erlingsson@islandsbanki.is og  Guðlaugur Örn Hauksson á mannauðssviði, 844-2714, gudlaugur.orn.hauksson@islandsbanki.is.

Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2022.

Hjá Íslandsbanka starfa um 700 manns með ástríðu fyrir árangri. Við vinnum saman að lausnum fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi. Starfsfólk Íslandsbanka leggur sig alltaf fram við að veita bestu bankaþjónustuna.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Nánari upplýsingar um starfið á veitir Jóhannes Örn Erlingsson forstöðumaður Dreifileiða, 777-5000, johannes.orn.erlingsson@islandsbanki.is og Guðlaugur Örn Hauksson á mannauðssviði, 844-2714, gudlaugur.orn.hauksson@islandsbanki.is.