Stafrænn hönnuður

Júní 3. Nov 2025 Fullt starf

Kæri stafræni hönnuður 💛

Við hjá Júní leitum að afbragðsgóðum hönnuði til að ganga til liðs við okkur. Við erum á fullu að hanna og smíða stafrænar vörur og þjónustu fyrir mörg af framsæknustu fyrirtækjum og stofnunum landsins. Verkefnin eru fjölbreytt, metnaðarfull og falleg – alveg eins og við viljum hafa þau. Við lifum og hrærumst í notendaupplifun og góðri hönnun. Það eru okkar trúarbrögð. Ef þú deilir þessum áhuga og langar til að taka þátt í skemmtilegri hönnunarferð – kíktu í heimsókn!

Menntunar- og hæfniskröfur 🧠

Háskólamenntun í grafískri hönnun eða sambærileg menntun
5+ ára reynsla í stafrænni hönnun

Hönnunarstakkur ⚒️

Figma, ChatGPT, Illustrator, Lovable, Framer, Photoshop, Jitter og smá After Effects. Sköpunargáfa, heili, hendur, slack, email og slatti af kaffi.

✨ Bónus ef þú kannt motion grafík eða teiknar fallega.

Júní 🌞

Við erum skapandi hópur sem vinnur að stafrænum lausnum fyrir mörg af stærstu og áhugaverðustu fyrirtækjum og stofnunum landsins. Júní er fjölskylduvænn vinnustaður þar sem fólk hefur frelsi, traust og öll bestu tólin til að gera magnaða hluti.

Fríðindi & næs 💝

Starfsfólk Júní fær alls konar mega næs fríðindi. Meira um það síðar í ferlinu.

Sendu okkur línu á job@juni.is – CV, portfolio eða bara link á eitthvað sem sýnir þína einstöku færni.

Með kveðju frá öllum hjá Júní ❤️

Sjá meira og myndir


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Senda okkur góðan tölvupóst á job@juni.is fyrir 17. nóvember nk.