Hinn fullkomni ráðgjafi?

Parallel ráðgjöf 11. Jan 2021 Fullt starf

Ráðgjafafyrirtækið Parallel leitar að ráðgjafa í fullt starf. Við aðstoðum fjölbreyttan hóp fyrirtækja og stofnana í stafrænni vegferð. Ráðgjöf okkar felst í að greina tækifæri, tryggja framkvæmd og skila ávinningi til fyrirtækja sem vilja tryggja sér forskot með stafrænni þjónustu

Fullkominn umsækjandi:

  • á auðvelt með að sjá stóru myndina og fanga lykilskilaboð

  • hefur næmt auga fyrir notendaupplifun og greiningarfærni

  • hefur unnið með forriturum og hönnuðum í stafrænu vöruferli

  • getur sett saman kynningar sem enda í standandi lófaklappi og votum vöngum

  • getur ávinnings- og kostnaðarmetið verkefni

  • er menntaður verkfræðingur, tölvunarfræðingur eða viðskiptafræðingur

Ef þetta hljómar eins og þú þá viljum við heyra í þér, jafnvel þó þú uppfyllir ekki öll þessi atriði en hefur brennandi áhuga á breytingastjórnun og stafrænum heimi

Umsóknir berist á netfangið parallel@prl.is fyrir þann 19. janúar nk.
www.prl.is


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsóknir berist á netfangið parallel@prl.is fyrir þann 19. janúar nk. www.prl.is