Handbókagerð og skjölun – Vaki
Sérfræðingur í handbókagerð og skjölun vinnur að gerð handbóka fyrir ýmis tæki í vöruflóru Vaka/MSD, gerð þjálfunarefnis og tryggir að staðlar og reglugerðir séu uppfylltar hvað varðar þróun, framleiðslu og afhendingu á vörum Vaka/MSD.
Helstu verkefni
- Gerð handbóka fyrir ýmiss tæki í vöruflóru Vaka/MSD
- Gerð þjálfunarefnis að ýmsu tagi
- Tryggja að staðlar og reglugerðir séu uppfylltir hvað varðar þróun, framleiðslu og afhendingu á vörum Vaka/MSD
- Hafa yfirlit yfir framgang og stöðu verkefna
Hæfniskröfur
- Frumkvæði, sjálfstæði og góð samskiptahæfni
- Eiga auðvelt með að vinna í alþjóðlegu starfsumhverfi
- Reynsla í handbókagerð er kostur
- Þekking á stöðlum og reglugerðum tengdum þróun og afhendingu tækjabúnaðar er kostur
- Góð enskukunnátta
Nánari upplýsingar veita Yrsa Guðrún Þorvaldsdóttir, yrsa@hagvangur.is og Inga Steinunn Arnardóttir, inga@hagvangur.is
Vaki fiskeldiskerfi ehf. var stofnað árið 1986 og hefur frá fyrstu tíð verið leiðandi fyrirtæki í hönnun og þróun á hátæknibúnaði fyrir fiskeldi um allan heim. Rúmlega 30 starfsmenn sinna vöruþróun, framleiðslu, sölu og þjónustu í höfuðstöðvum Vaka á Íslandi og sölu- og þjónustuaðilar eru á öllum stærstu mörkuðum erlendis. Helstu vörur Vaka eru fiskiteljarar byggðir á tölvusjón sem telja fisk á öllum stigum í eldinu, ásamt fiskiflokkurum og fiskidælum. Annað sérsvið Vaka er myndavélabúnaður til að stærðarmæla fisk í sjókvíum, telja laxalús og fylgjast með velferð og vexti fiskanna.
Árið 2019 keypti MSD Animal Health allt hlutafé í Vaka og nú sem hluti af MSD eru uppi spennandi áform um stækkun og eflingu fyrirtækisins. Aukin áhersla verður lögð á vöruþróun og þjónustu í nánu samstarfi við viðskiptavini og munu nýjar lausnir Vaka stuðla að framþróun fiskeldis um allan heim.
Frekari upplýsingar á www.vaki.is
Sækja um starf
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Nánari upplýsingar veita Yrsa Guðrún Þorvaldsdóttir, yrsa@hagvangur.is