Grafískur hönnuður

Orkan 25. Mar 2022 Fullt starf

Markaðs- og þróunarsvið Orkunnar ber ábyrgð á vörumerkjunum Orkan, Extra og 10-11 auk samvinnu við dótturfélögin Löður, Gló og Lyfjaval.

Helstu verkefni:

  • Hönnun og uppsetning á fjölbreyttu efni fyrir prent, umhverfismerkingar og stafræna miðla fyrir vörumerki Orkunnar.
  • Hugmyndavinna og efnissköpun.
  • Samskipti og grafísk aðstoð þvert á deildir og dótturfélög.
  • Ýmis önnur tilfallandi verkefni tengd markaðs- og kynningarmálum.

Við erum að leita að einstaklingi sem:

  • Er metnaðarfullur, sýnir frumkvæði og er framúrskarandi í samskiptum.
  • Með hæfileika til að hugsa út fyrir boxið og leita nýrra lausna.
  • Kann vel á helstu hönnunarforritin (Adobe CC)
  • Hefur þekkingu og reynslu í umbroti og hönnun fyrir fjölbreytta miðla.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Reynsla af að vinna í markaðsteymi er kostur.

Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál – allar nánari upplýsinar veitir Brynja Guðjónsdóttir, markaðsstjóri, brynjag@orkan.is


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Orkumikill hönnuður óskast! Við auglýsum eftir grafískum hönnuði sem er tilbúinn að hlaupa hratt og taka þátt í fjölbreyttum verkefnum. Viðkomandi mun starfa hjá markaðs- og þróunarsviði Orkunnar.