Gagnagrunnssérfræðingur (e. data engineer)

Hagstofa Íslands 20. Apr 2018 Fullt starf

Hagstofa Íslands leitar að sérfræðingi til að taka þátt í uppbyggingu gagnainnviða og gagnamiðlunar stofnunarinnar, Gagnagrunnssérfræðingur mun sinna hönnun og þróun gagnagrunna ásamt úrvinnslu- og miðlunarferlum miðað við ytri og innri þarfir notenda. Að auki felst í starfinu almenn hugbúnaðarþróun meðal annars til að auka sjálfvirkni ýmissa keyrslna ásamt rekstri gagnagrunnsþjóna.

HÆFNISKRÖFUR

  • Geta til að sökkva sér í og leysa upplýsingatæknivandamál

  • Þekking og reynsla af almennt viðurkenndum venjum í hugbúnaðarþróun

  • Þekking og reynsla af notkun og rekstri mismunandi gagnagrunnslausna

  • Þekking á gæðaferlum í innlestrarferlum og gagnagrunnsvinnslu er æskileg

  • Þekking á tæknilegri högun almennra gagnagrunnskerfa er æskileg

  • Þekking á helstu öryggisógnum upplýsingakerfa er æskileg

  • Þekking og reynsla af vöktunarkerfum og samskipanastjórnunartólum (e. configuration management tools) er æskileg

  • Þekking og reynsla af vélrænu gagnanámi (e. machine learning) er mikill kostur

  • Þekking og reynsla af rekstri netþjóna er kostur

  • Háskólapróf í tölvunarfræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi er kostur

  • Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar

Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytisins og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2018 og skulu umsóknir berast til: Starfsumsókn, Borgartúni 21a, 150 Reykjavík eða rafrænt á netfangið starfsumsokn@hagstofa.is

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknafrestur rennur út.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Hauksdóttir í síma 5281000.

Hagstofa Íslands er miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar á Íslandi. Hlutverk Hagstofunnar er að vinna hlutlægar hagskýrslur, hafa forystu um samhæfingu hagtalna, stunda rannsóknir og stuðla þannig að upplýstri umræðu og faglegum ákvörðunum. Nánari upplýsingar má finna á www.hagstofa.is


Sækja um starf