Gagnaforritari og gagnagrunnsstjóri

Hagstofa Íslands 11. Oct 2018 Fullt starf

Gagnaforritari og gagnagrunnsstjóri (e. data engineer)
Starfið felst í uppbyggingu gagnainnviða og gagnamiðlunar hjá Hagstofu Íslands. Starfsmaðurinn mun sinna rekstri og skipulagi gagnagrunnsþjóna og gagnaskipunar, hönnun og þróun úrvinnslu- og miðlunarferla miðað við ytri og innri þarfir notenda ásamt almennri hugbúnaðarþróun sem viðkemur gagnanýtingu. Starfsmaðurinn vinnur í gagnagrunnsteymi Hagstofunnar.

HÆFNISKRÖFUR

• Geta til að sökkva sér í og leysa upplýsingatæknivandamál

• Reynsla og þekking á almennt viðurkenndum venjum í hugbúnaðarþróun

• Reynsla af hugbúnaðarþróun og bestun gagnagrunnskerfa

• Þekking og reynsla af notkun og rekstri mismunandi gagnagrunnsþjóna

• Reynsla af hönnun tæknilegrar högunar almennra gagnagrunnskerfa

• Þekking á gæðaferlum í innlestrarferlum og gagnagrunnsvinnslu er æskileg

• Þekking á helstu öryggisógnum upplýsingakerfa er æskileg

• Þekking og reynsla af vöktunarkerfum og samskipanastjórnunartólum (e. configuration management tools) er æskileg

• Þekking og reynsla af rekstri netþjóna er kostur

• Háskólapróf í tölvunarfræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi er kostur

• Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar

Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytisins og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 22.10.2018 og skulu umsóknir berast til: Starfsumsókn, Borgartúni 21a, 150 Reykjavík eða rafrænt á netfangið starfsumsokn@hagstofa.is.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknafrestur rennur út.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Hauksdóttir í síma 5281000.

Hagstofa Íslands er miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar á Íslandi. Hlutverk Hagstofunnar er að vinna hlutlægar hagskýrslur, hafa forystu um samhæfingu hagtalna, stunda rannsóknir og stuðla þannig að upplýstri umræðu og faglegum ákvörðunum. Nánari upplýsingar má finna á www.hagstofa.is


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsóknarfrestur er til og með 22.10.2018 og skulu umsóknir berast til: Starfsumsókn, Borgartúni 21a, 150 Reykjavík eða rafrænt á netfangið starfsumsokn@hagstofa.is