Gagnaforritari / gagnaverkfræðingur

Snjallgögn 18. May 2024 Fullt starf

Við leitum að úrræðagóðum gagnaforritara/gagnaverkfræðingi til að viðhalda og þróa nútímaleg gagnainnviði til rekstrar gervigreindarlíkana í viðskiptalegu samhengi.

Starfssvið

  • Hönnun, viðhald og þróun á nútímalegum gagnainnviðum og gagnalíkönum.
  • Hönnun, rekstur og þróun á gagnapípum og vinnslum.
  • Náið samstarf við sérfræðinga í gagnavísindum, bakendaforritara og hagaðila gagna.
  • Eftirfylgni hágæða vinnubragða í meðhöndlun og öryggi gagna.

Hæfnikröfur

  • Háskólapróf í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði, tölvuverkfræði eða í öðrum verk- og raunvísindagreinum.
  • Mikil þekking og reynsla í forritunarmálum og gagnatengdum tólum á borð við Python, Airflow og DBT.
  • Reynsla af gagnavinnslukerfum eins og Bytewax, grafagagnagrunnum eins og Neo4j og dálkahýstum kerfum eins og Clickhouse.
  • Reynsla af góðri högun og stjórnun gagnagrunna til að hámarka árangur og öryggi í rekstri.

Launakjör 

  • Samkeppnishæf laun.
  • Tækifæri til faglegrar þróunar og símenntunar.
  • Sveigjanlegur vinnutími.
  • Skapandi, jafnvel nýskapandi, vinnuumhverfi

Frekari Upplýsingar

Áhugasamir umsækjendur eru hvattir til að senda inn ferilskrá ásamt ítarlegri kynningu á hæfni sinni og reynslu sem þeir telja nýtast í starfi. Dæmi um fyrri verkefni eða framlag til tengdra verkefna eru einnig velkomin.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Meira á 50skills síðunni