Forritari

Já + Gallup 20. Jan 2022 Fullt starf

Við leitum að full-stack forritara til starfa í öflugt teymi á tæknisviði Já og Gallup.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þróun og viðhald á veflausnum Já og Gallup

  • Skapa nýjar stafrænar vörur fyrir Já og Gallup

Menntunar- og hæfniskunnátta

  • Eftirsótt tæknikunnátta, en ekki nauðsynleg: Python, Docker, Vue.js (eða sambærilegum js umhverfum), SQL og Flutter

Fríðindi í starfi

  • Sveigjanlegur vinnutími

  • Öll þau tæki og tól sem þú þarft til vinnu

  • Fjölbreytt og spennandi úrval þróunarverkefna

  • Fyrirmyndar vinnuaðstaða og mötuneyti

  • Samkeppnishæf laun

  • Frjálsir dagar og lærdómsdagar til að kynna þér nýja hluti og vinna í því sem þér finnst áhugavert

  • Ótakmarkað magn af kaffi

Aðrar upplýsingar

Já býður upp á lausnir sem auðvelda viðskipti og samskipti og er vefurinn Já.is ein þeirra. Gallup er leiðandi markaðsrannsóknafyrirtæki á Íslandi og býður upp á lausnir sem auðvelda fyrirtækjum og stofnunum ákvarðanatöku.

Áhersla Já og Gallup á stafræna þróun þýðir að vöruframboðið okkar tekur stöðugum breytingum. Til að mæta þeim áskorunum styðjum við og hvetjum starfsfólk til að þróast og læra í starfi.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristinn Vignisson, sviðsstjóri tæknisviðs, kristinn@ja.is


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsóknir skulu sendast á kristinn@ja.is