Framendaforritari@Vörður tryggingar

Vörður tryggingar 13. Nov 2019 Fullt starf

Framendaforritari@Vörður tryggingar

Vörður leitar að öflugum framendaforritara í nýtt hugbúnaðarþróunarteymi innan Varðar.

Markmið teymisins er að þróa leiðandi og nútímalegar hugbúnaðarlausnir í þeim tilgangi að hámarka notendaupplifun viðskiptavina og breyta upplifun viðskiptavina af samskiptum sínum við félagið. Til að ná þessu markmiði þurfum við áhugasaman og metnaðarfullan einstakling sem er tilbúinn að skapa með okkur framtíðina.

Starfssvið:

  • Þróun á nýju notendaviðmóti fyrir vefkerfi Varðar
  • Þátttaka í hugmyndavinnu fyrir notendaupplifun
  • Samskipti við bakendaforritara og grafíska hönnuði
  • Þátttaka í þróunarteymum og samvinna við aðrar deildir innan Varðar

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðmót
  • Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
  • Drifkraftur og hæfni í teymis- og verkefnavinnu
  • Brennandi áhugi á UX
  • Reynsla af React, Git, Contentful
  • Reynsla af Azure, Jira, DevOps, .NET kostur
  • Háskólamenntun í tölvunarfræði eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi

Vörður er ört stækkandi tryggingafélag með rúmlega 100 starfsmenn og 65 þúsund viðskiptavini um land allt. Félagið býður upp á nútímalegt vinnuumhverfi sem byggir á umbótamenningu þar sem áhersla er lögð á framsækna hugsun, sveigjanleika, árangur, samfélagslega ábyrgð, vellíðan og starfsánægju. Vörður er jafnlaunavottað fyrirtæki og hvetjum við konur jafnt sem karla til að sækja um.

Vörður er Fyrirtæki ársins 2019 hjá VR.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Bjarni Benediktsson teymisstjóri í netfanginu bjarniben@vordur.is

Tekið er á móti umsóknum á heimasíðu félagsins www.vordur.is

Umsóknarfrestur: 24.11.2019


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Tekið er á móti umsóknum í gegnum vef félagsins.