Framendaforritari – Front End Developer

HH Ráðgjöf 5. May 2022 Fullt starf

Prógramm leitar að framendaforriturum. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Ef þú ert áhugasamur og metnaðarfullur einstaklingur og tilbúinn til að taka að þér og leiða fjölbreytt og krefjandi verkefni þá áttu erindi við okkur. Við leitum að einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt í að byggja upp framendateymi Prógramms.

Prógramm var stofnað 2007. Allt frá upphafi hafa markmið og gildi okkar verið þau sömu, einfaldleiki, nákvæmni og gleði. Prógramm á samstarf við fáa viðskiptavini en stóra og mikilvæga fyrir íslenskt samfélag. Við sérhæfum okkur í þróun og hönnun á sérsmíðuðum hugbúnaði. Hugbúnaðarferli Prógramms er ISO-27001 vottað.

Prógramm er ört vaxandi fyrirtæki, fjárhagslega sterkt og býður upp á gott og fjölskylduvænt vinnuumhverfi.

Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um. Einnig bjóðum við upp á fjarvinnuumhverfi og fögnum umsóknum utan höfuðborgarsvæðisins.

Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla í framendaforritun skilyrði
Þekking og reynsla af TypeScript
Þekking á React
Þekking á GraphQL
Þekking á hönnunarkerfum, Storybook kostur
Reynsla í viðmótsprófunum kostur
Geta unnið í teymi og hafa jákvætt og lausnamiðað viðhorf

Starfstengd fríðindi
Sveigjanlegur vinnutími
Íþróttastyrkur
Sturta og búningsklefi
Samgöngustyrkur
Öflugt starfsmannafélag
Frábært mötuneyti og nasl milli mála


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Hulda Helgadóttir ráðgjafi hjá HH Ráðgjöf hefur umsjón með ráðningu í starfið og veitir frekari upplýsingar ef óskað er í síma 561 5900 eða í tölvupósti hhr@hhr.is

Tekið er á móti umsóknum á heimasíðu HH Ráðgjafar www.hhr.is

Beinn hlekkur á starfið: https://hhr.is/job-details/1888