Framendaforritari

Andes og Prógramm 26. Mar 2024 Fullt starf

Andes og Prógramm leita að reyndum framendaforritara í margvísleg verkefni.

Andes og Prógramm eru systurfélög sem saman mynda eitt af öflugri hugbúnaðarhúsum landsins. Við trúum því að við getum aukið skilvirkni með sérfræðiþekkingu og vali á réttum verkfærum fyrir hvert og eitt verkefni. Við erum leiðandi í stafrænni umbreytingu og sérsvið okkar eru skýjalausnir, sjálfvirkni, innviðir og flóknari hugbúnaðarlausnir. Vinnustaðurinn er frábær vettvangur fyrir þá sem vilja þróast áfram á sviði upplýsingatækni og taka þátt í krefjandi, skapandi og skemmtilegum verkefnum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þróun upplýsingakerfa fyrir stærri stofnanir og fyrirtæki
  • Sjálfvirknivæðing vinnuferla, skjölun og uppsetning á stafrænum innviðum

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi, td. tölvunarfræði eða hugbúnaðarverkfræði
  • A.m.k. þriggja ára reynsla af hugbúnaðarþróun
  • Mikil reynsla af React
  • Góð þekking á Javascript, HTML og CSS
  • Áhugi á að tileinka sér nýja tækni og þróast í starfi
  • Lipurð í mannlegum samskiptum, sjálfstæði og drifkraftur
  • Góð enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli

Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur
  • Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl 2024

  • Öllum umsóknum þarf að fylgja ferilskrá

  • Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál

  • Öllum umsóknum verður svarað