Framendaforritari

Sendiráðið 6. Aug 2019 Fullt starf

Við hjá Sendiráðinu viljum bæta við okkur metnaðarfullum og skemmtilegum framendaforritara sem vill vinna hjá framsæknu fyrirtæki í fjölbreyttum og spennandi verkefnum.

Umsækendur þurfa að vera vel kunnugir nýjustu tækni og með góða reynslu af framenda vefforritun. Einnig væri gott ef einstaklingurinn hefði mikinn áhuga á notendaviðmótum og hönnun þar sem við leggjum mikla áherslu á framúrskarandi upplifun fyrir notendur.

Hæfni og reynsla

  • Bachelor gráða í Tölvunarfræði eða samskonar menntun
  • 3+ ára reynsla í hugbúnaðargerð
  • Þekking á og reynsla af vinnu í hugbúnaðarteymi
  • Góð þekking á Javascript, HTML og CSS

Frábærir eiginleikar

  • Góð kunnátta á ReactJS, Sass, NodeJS, Redux
  • Almenn reynsla af vinnu með e-commerce og/eða CMS kerfi
  • Þekking og reynsla á útgáfustýringu t.d. með Git
  • Góða þekkingu á stöðlum og aðgengi vefja

Sendiráðið er hugbúnaðarstofa upp á Höfðabakka sem er troðfull af sköpunarkrafti og skemmtilegu fólki sem samanstendur af hönnuðum, forriturum og ráðgjöfum sem hafa alhliða þekkingu á hugbúnaðarþróun og starfrænum verkefnum.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Best er að senda umsókn ásamt ferilskrá á hrafn@sendiradid.is