Forstöðumaður Daglegra bankaviðskipta

Íslandsbanka 7. Jun 2024 Fullt starf

Íslandsbanki leitar að öflugum aðila í stjórnendateymi Stafrænnar þróunar og gagnastýringar til að leiða teymi fagfólks í hugbúnaðarþróun með áherslu á gæði, tæknilega framþróun, endurnýtanleika og afhendingar lausna.

Við leitum eftir aðila til að leiða 20+ sérfræðinga sem vinna að vöruþróun lausna fyrir dagleg bankaviðskipti og opið bankaumhverfi ásamt nauðsynlegum innviðum, t.a.m. kredit-, debet- og innlánavörur ásamt innlendri greiðslumiðlun. Forstöðumaður ber ábyrgð á daglegum rekstri, hefur eftirlit með og ber ábyrgð á kostnaði, eftirfylgni og frávikagreiningum. Forstöðumaður hefur góða yfirsýn á kerfi og viðskiptaferla sem falla undir ábyrgðarsvið hans í samræmi við upplýsingatæknistefnu bankans.

Starfið heyrir undir yfirmann stafrænnar þróunar.

Helstu verkefni:

  • Fagleg forysta og öflug stjórnun
  • Eftirlit, samskipti og vinna með ytri aðilum
  • Tæknileg framþróun í takt við breyttar kröfur viðskiptavina
  • Tæknihögun og innleiðing tæknistefnu
  • Stafræn vöruþróun, nýsköpun og stefnumótun
  • Skipulag og þróun mannauðs

Hæfniskröfur:

  • Háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði eða sambærileg menntun
  • Reynsla af hugbúnaðarþróun og tæknihögun æskileg
  • Leiðtogahæfni og stjórnunarreynsla
  • Stefnumiðuð hugsun, sköpunar- og drifkraftur
  • Frumkvæði og geta til að vinna undir álagi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum

Nánari upplýsingar:

Nánari upplýsingar veita Árni Geir Valgeirsson á upplýsingatæknisviði, arni.geir.valgeirsson@islandsbanki.is og á mannauðssviði Guðlaugur Örn Hauksson, gudlaugur.orn.hauksson@islandsbanki.is.

Hjá Íslandsbanka starfa um 750 manns sem hafa ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á að skapa virði til framtíðar með traustum rekstri og framúrskarandi þjónustu.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Nánari upplýsingar veita Árni Geir Valgeirsson á upplýsingatæknisviði, arni.geir.valgeirsson@islandsbanki.is og á mannauðssviði Guðlaugur Örn Hauksson, gudlaugur.orn.hauksson@islandsbanki.is.