Forritari í bakenda

Klappir Grænar Lausnir 15. Dec 2020 Fullt starf

Lýsing á Klöppum

Klappir Grænar Lausnir er upplýsingatæknifyrirtæki sem kappkostar að veita viðskiptavinum sínum aðgengi að framúrskarandi hugbúnaðarlausnum á sviði umhverfismála.

Hugbúnaðarlausnir Klappa eru í notkun hjá yfir 300 fyrirtækjum um heim allan og er stefnan sett á enn frekari vöxt á næstu misserum
Við leitum að öflugum einstaklingi til að taka þátt í þeirri vegferð með okkur. Boðið er upp á skemmtilegt vinnuumhverfi með fjölbreyttum verkefnum og tækifærum til að hafa víðtæk samfélagsáhrif.

Starfslýsing

Starfsheiti: Forritari í bakenda

Nánasti yfirmaður: Tæknistjóri

Tæknilegir innviðir:

  • PostgreSQL (Microsoft SQL Server og Oracle í minna mæli)
  • MongoDB
  • Node.js
  • GraphQL
  • gRPC
  • React
  • AWS
  • GitHub

Helstu viðfangsefni, almennar skyldur og ábyrgð

Vinna í frekari þróun á gagnagrunni og tengdum lausnum í millilagi. Tryggja að bakendi mæti óskum og væntingum félagsins og uppfylli kröfulýsingar.

Vinna við daglegan rekstur gagnagrunns, viðhald og betrumbætur á uppsetningu hans.
Vinna við kerfisstýringu (sysadmin).

Unnið er meðal annars með AWS, GraphQL og Postgres.

Starfsmaðurinn starfar ýmist einn að sínum verkefnum eða í teymum.

Þekking og hæfni sem nauðsynlegar eru fyrir starfið

  • BS gráða í tölvunarfræði eða skyldu fagi nauðsynleg.
  • 2 ára reynsla af bakendaforritun.
  • Góður skilningur á gagnastýringu (þ.e. leyfum, endurheimt, öryggismálum og eftirliti.
  • Reynsla af SQL (PostgreSQL eða öðrum SQL gagnagrunnskerfum).

Aðrir kostir fyrir starfið

  • Þekking á vefforritun (TypeScript og JavaScript).
  • Góð greiningar- og skipulagshæfni.
  • Hæfni til að skilja óskir/þarfir framenda notenda og lausnamiðað viðhorf almennt.
  • Góð samskiptafærni bæði í samræðum og skriflega.

Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Öllum umsóknum þarf að fylgja ferilskrá með upplýsingum um fyrri störf, menntun, o.s.frv.

Umsóknarfrestur er 15. janúar 2021.