Forritari Dynamics 365

Advania 8. Feb 2023 Fullt starf

Við leitum að forritara í Orkulausna hópinn í Microsoft Dynamics 365 teyminu okkar.  Staðsetning á Akureyri eða Reykjavík. Um er að ræða hugbúnaðarvinnu og þjónustu við stór orku- og veitufyrirtæki.   

Verkefnin eru á sviði mælaumsjónar, rafrænna samskipta og skeytasendinga milli sölu og dreifingaraðila, orkureikningagerðar og fleira.  Um er að ræða þjónustu við núverandi kerfi en einnig þróun og innleiðingar á nýjum kerfum. Samvinna við erlend hugbúnaðarfyrirtæki er mikil og því er skilyrði að viðkomandi geti talað og skrifað ensku.

Helstu verkefni:

  • Þátttaka í hönnun, útfærslu og innleiðingu á lausnum fyrir orkufyrirtæki
  • Ráðgjöf og þjónusta við orkufyrirtæki

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í tölvunar- eða verkfræði
  • Æskilegt að viðkomandi hafi reynslu og þekkingu á orku- og veitugeiranum
  • Reynsla af Microsoft Dynamics AX 2012 eða Microsoft Dynamics 365 er kostur
  • Góð enskukunnátta er skilyrði
  • Gott skipulag og frumkvæði
  • Jákvæðni, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum

Vinnustaðurinn Advania

Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi – bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.

Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.

Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni.

Ferli ráðninga

  1. Tekið á móti umsóknum til 21. febrúar 2023
  2. Yfirferð umsókna
  3. Boðað í fyrstu viðtöl
  4. Boðað í seinni viðtöl
  5. Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á
  6. Öflun umsagna / meðmæla
  7. Ákvörðun um ráðningu
  8. Öllum umsóknum svarað

Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Elín Margrét Lýðsdóttir, elin.margret.lydsdottir@advania.is / 440 9000.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

.