Forritari

Sendiradid 16. Nov 2021 Fullt starf

Við hjá Sendiráðinu leggjum áherslu á vandað vinnuumhverfi þar sem sköpunargáfa fær að blómstra og endurspeglar þau gæði sem við höfum uppá að bjóða. Við veitum ráðgjöf, hönnum og þróum stafrænar lausnir. Við viljum bæta í hópinn hjá okkur metnaðarfullum og skemmtilegum forritara sem vill vinna hjá framsæknu fyrirtæki við við að þróa hugbúnað í nýjasta tæknistakk sem völ er á.

Spennandi og fjölbreytt starf

Umsækjendur þurfa að vera vel kunnugir nýjustu tækni og með góða reynslu. Við teljum að notendaupplifun sé mikilvægur þáttur í hugbúnaðarþróun og við sjáum áhuga í notendaviðmóti sem kost.

Erum við að leita af þér?

  • Ertu jákvæður, metnaðarfullur og lausnamiðaður forritari?

  • Hefur þú sjálfstæða og skapandi hugsun?

  • Áttu auðvelt með samskipti og samvinnu í teymisvinnu?

  • Hefur þú áhuga á að takast á við fjölbreytt verkefni fyrir ýmsar stofnanir og fyrirtæki?

  • Hefur þú brennandi áhuga á hugbúnaðarþróun?

Hæfniskröfur

  • Að minnsta kosti þriggja ára reynsla af vinnu við forritun

  • Góð þekking á React/next.js, Node.js og Typescript

  • Menntun á sviði tölvunarfræði er kostur en ekki krafa

Það sem við bjóðum

  • Við leggjum áherslu á samvinnu og teljum að teymisvinna sé lykillinn að árangri

  • Vinna með skemmtilegu og hæfileikaríku fólki í frábæru starfsumhverfi

  • Niðurgreiddur hádegismatur í næsta húsi, 2 góðar kaffivélar og fullur ísskápur af allskonar

  • Tölvubúnað að eigin vali

  • Fögnum styttingu vinnuvikunnar

  • Bjóðum upp á sveigjanleika í viðveru og fjarvinnu

  • Samkeppnishæf laun

  • Fjölskylduvænt fyrirtæki


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Sendu okkur umsókn og ferilskrá á hallo@sendiradid.is, ef þú telur þig vera réttu manneskjuna í starfið. Hlökkum til að heyra frá þér.