Forritari

Kolibri 9. Nov 2021 Fullt starf

Kolibri leitar að forritara sem deilir með okkur ástríðu fyrir því að þróa framsækinn, notendamiðaðan hugbúnað. Við styðjum við sjálfræði í vali á tólum og aðferðum og okkur finnst alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt og læra. Við skrifum mest í TypeScript, bæði í framenda og bakenda og notum aðallega React/Next.js í framenda.

Við leitum að fólki sem:

  • Hefur ástríðu fyrir þróun hugbúnaðar sem er framsækinn í tækni og getur staðist tímans tönn.
  • Hefur hæfileika til að tileinka sér nýjar aðferðir í hugbúnaðarþróun.
  • Hefur drífandi áhuga á nýjustu tækni.
  • Er forvitið, sjálfstætt og hneigt til aðgerða.
  • Er tilbúið að biðja um aðstoð samstarfsfólks.

Um vinnustaðinn

Hjá Kolibri er unnið í opnu og nánu starfsfyrirkomulagi þar sem allir hafa möguleika á að láta til sín taka. Við trúum að góð aðstaða og aðbúnaður skipti miklu máli þegar kemur að því að búa til vörur á heimsmælikvarða, og að lýðræðislegt stjórnkerfi sem byggir á dreifðum ábyrgðum stuðli að vellíðan og vinnugleði. Við bjóðum m.a. upp á:

  • Háklassa búnað sem starfsfólk velur sjálft, hvort sem það er tölva, skjár, sími, eða eitthvað annað.
  • Frábæra staðsetningu miðsvæðis í Reykjavík.
  • Hollan og góðan mat frá veitingastöðum bæjarins.
  • Mikið frjálsræði.
  • Faghópamenningu þar sem við lærum hvert af öðru.
  • Frístundastyrk, samgöngustyrk, o.fl. eftir þörfum.
  • Gegnsæi sem gerir starfsfólki kleift að skoða bókhald, tekjur og útgjöld, laun samstarfsfólks, o.s.frv.

Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Vinsamlega sendið umsóknir og spurningar á hiring@kolibri.is