Forritari

Valitor hf. 25. Aug 2021 Fullt starf

Valitor óskar eftir að ráða forritara í þróunarteymi Útgáfulausna á Íslandi.

Þróunarteymi Útgáfulausna sér um hugbúnaðarþróun fyrir kortaútgáfu og tengdar greiðslulausnir sem Valitor býður upp á. Teymið heldur utan um kerfi á bak við kortanotkun, vefþjónustur, uppgjörskerfi gagnvart bönkum og korthöfum sem og farsímagreiðslur á borð við Apple Pay o.fl.

Teymið er reynslumikið og hefur unnið að allri framþróun í kringum kortaviðskipti sem hefur átt sér stað hérlendis undanfarin ár. Við leitum að kraftmiklum einstaklingi sem hefur áhuga á að verða hluti af öflugu teymi og taka þátt í spennandi verkefnum sem framundan eru.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði eða sambærilegt

  • 3+ ára reynsla af forritun í .NET/C#

  • Þekking á SQL

  • Reynsla af vinnu í agile þróunarteymi og notkun á git útgáfustýringarkerfi

  • Áhugi á sjálfvirknivæðingu í prófunum og útgáfum

  • Færni í mannlegum samskiptum og hópavinnu

  • Lausnamiðað hugarfar og vilji til að takast á við breytilegar áskoranir

  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsókninni þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 5. september, 2021.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Hrafn Pétursson, Development Manager, Issuing Processing, sigurdur.hrafn.petursson@valitor.com