Forritari

Sendiradid 25. Aug 2020 Fullt starf

Við hjá Sendiráðinu viljum bæta við okkur metnaðarfullum og skemmtilegum fram og / eða bakenda- forritara sem vill vinna hjá framsæknu fyrirtæki í fjölbreyttum og spennandi verkefnum. Við bjóðum upp á sveigjanlegan vinnutíma og sínum mikinn stuðning við fjölskyldufólk.

Umsækjendur þurfa að vera vel kunnugir nýjustu tækni og vinna vel í hóp þar sem mikil áhersla er lögð á jákvæðni og teymisvinnu hjá okkur í Sendiráðinu.

Hæfni og reynsla

  • Bachelor gráða í Tölvunarfræði eða samskonar menntun
  • Lágmark 3 ára reynsla af vinnu í hugbúnaðarteymi
  • Þekking og reynsla á útgáfustýringu t.d. með Git

Helstu vopn Sendiráðsins

  • Javascript, HTML og CSS
  • ReactJS, Sass, NextJS og Redux
  • REST og GraphQL
  • NodeJS og NestJS
  • AWS og PostgreSQL
  • ElasticSearch
  • TypeScript

Sendiráðið er hugbúnaðarstofa sem er troðfull af sköpunarkrafti og skemmtilegu fólki sem samanstendur af hönnuðum, forriturum og ráðgjöfum sem hafa alhliða þekkingu á hugbúnaðarþróun og starfrænum verkefnum.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsókn er opin til og með 4. september 2020