Forritari

Intellecta 8. Dec 2022 Fullt starf

FRAMÚRSKARANDI FORRITARI VIÐSKIPTA- OG VERSLUNARKERFA

Vegna aukinna verkefna og umsvifa leitum við að metnaðarfullum og drífandi einstaklingum til þess að starfa með okkur. Ef þú hefur áhuga á að vinna á líflegum vinnustað, í framlínu tæknibreytinga og takast á við spennandi verkefni þá erum við að leita að þér.

Rue de Net er hugbúnaðarhús í upplýsingatækni sem aðstoðar framúrskarandi fyrirtæki við val og innleiðingu á viðskipta- og verslunarlausnum. Rue de Net er á fullri ferð með viðskiptavinum sínum úr skápnum í skýið, með því að bjóða nýjustu tækni, gæðavörur og persónulega þjónustu.

Rue de Net býður upp á frábært vinnuumhverfi, sveigjanlegan vinnutíma og starfsaðstöðu á besta stað í bænum. Hjá Rue de Net munt þú starfa í hópi sérfræðinga sem nálgast verkefni sín með þekkingu, fagmennsku og samvinnu að vopni. Þú færð fjölbreytt og krefjandi verkefni og tækifæri til að nota framsýni, nýsköpun og gæði til að gera einhver bestu fyrirtæki landsins enn betri.

Í starfi hjá okkur ertu að fara að…

  • Forrita bæði í vöruþróun og þjónustu
  • Forrita og vinna með viðskiptakerfi frá Microsoft, þ.e. Business Central (áður NAV)
  • Forrita og vinna með verslunarkerfi frá LS Retail, þ.e. LS Central
  • Nota VS Code, AL, SQL, Docker, DevOps, Git, Azure Service Bus, REST, .NET ofl.
  • Eiga samskipti við og þjónusta framúrskarandi viðskiptavini

Ef þú hefur…

  • Tölvunarfræði, verkfræði eða sambærilega menntun
  • Hæfni og vilja til að setja þig inn í ný kerfi og læra nýja hluti
  • Samskiptahæfileika og góða þjónustulund
  • Getu til að vinna sjálfstætt og í hóp
  • Frumkvæði og öguð vinnubrögð
  • Reynslu af sambærilegu starfi þá er það kostur

…þá hvetjum við þig til að sækja um.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsóknarfrestur er til og með 31. desember 2022. Sótt er um starfið inni á https://alfred.is/starf/forritari-36 og þarf umsókn að fylgja starfsferilskrá.

Frekari upplýsingar veita Torfi Markússon (torfi@intellecta.is) og Henrietta Þóra Magnúsdóttir (henrietta@intellecta.is) ráðgjafar hjá Intellecta í síma 511-1225. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.