Bakendaforritari | Stafræn Þróun hjá Nova

Nova 13. Nov 2021 Fullt starf

Við leitum að reynslumiklum forritara til að ganga til liðs við hugbúanaðarþróunarteymi Nova. Um er að ræða fjölbreytt hlutverk í teymi sem sér um þróun og rekstur starfrænna lausna fyrir viðskiptavini og starfsmenn Nova.

Þú munt

  • taka þátt í þróun og uppbyggingu á sölu-, áskrifta- og viðskiptamannakerfum Nova
  • vinna við samþættingu kerfa og tengingar við kerfiseiningar tengdar fjarskiptarekstri
  • sinna skipulagi verkefna í samstarfi við kröfuhafa, vörustjóra og aðra í teyminu
  • koma að vöruþróun á fjarskiptamarkaði

Þú hefur

  • metnað fyrir því að skrifa góðan, viðhaldanlegan kóða
  • þekkingu á helstu hönnunarmynstrum hugbúnaðar
  • getu til að taka ábyrgð og leiða verkefni tæknilega
  • áhuga á að miðla þekkingu og reynslu til teymismeðlima
  • vilja til að finna bestu lausnina

Forritunarmál, tækni og tól sem við notum eru meðal annars .NET, C#, MSSQL, REST, Node.js, GraphQL, Kafka, OAuth og git.

Háskólapróf í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærilegt nám eða reynsla er kostur.

Nova er skemmtilegur og sveigjanlegur vinnustaður þar sem mikið er lagt upp úr góðum starfsanda og sjálfstæðum vinnubrögðum. Við leggjum gríðarlega áherslu á sterka liðsheild! Svo ef þú ert hress og lífsglöð manneskja sem vilt umgangast glás af lífsglöðu hæfileikafólki, vaxa og dafna í spennandi umhverfi, vinna fjölbreytt starf og hafa nóg að gera, þá viljum við endilega fá þig í hópinn!


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Best er að sækja um með því að skrá sig inn á Alfred.is en það er líka í boði að senda tölvupóst með CV á bergsveinns[hjá]nova.is