AWS Cloud Architect & DevOps Engineers

Andes og Prógramm 9. Apr 2024 Fullt starf

Andes og Prógramm leita að hugbúnaðarsérfræðingum með áhuga á AWS skýjatækni, DevOps og innviðaþróun.

Hjá okkur gengur þú í lið með öflugustu AWS sérfræðingum landsins sem hafa það að markmiði að veita hágæða tækniráðgjöf í nútíma skýjaumhverfi.

Starfið er fyrir fólk sem vill sérhæfa sig í AWS, DevOps og kerfisþróun. Andes mun styðja starfsmenn í að sækja sér vottun á borð við AWS Solutions Architect o.fl.

Andes er fyrsta íslenska fyrirtækið sem hlýtur AWS Advanced Partner vottun Amazon og vinnur náið með sérfræðingum AWS um heim allan.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hönnun og forritun innviða í AWS með áherslu á öryggi, áreiðanleika, skölun, sveigjanleika og kostnað
  • Ráðgjöf fyrir þróunarteymi um skýja-arkitektúr, skölun og öryggi
  • Þáttaka í yfirfærsluverkefnum (migration) og nútímavæðingu upplýsingatækniinnviða í AWS
  • Hönnun, ráðgjöf og innleiðing DevOps og CI/CD umhverfis

Hæfniskröfur

  • Marktæk reynsla af hugbúnaðarþróun
  • Mikill áhugi og geta til að læra nýja hluti

Kostir en ekki skilyrði

  • Reynsla í DevOps og hönnun CI/CD ferla
  • Þekking á AWS og hönnun innviða
  • Þekking á “Infrastructure as Code”, t.d. Terraform eða CloudFormation
  • Tæknileg geta og þekking á öryggi, skölun og áreiðanleika tölvukerfa

Fríðindi í starfi

  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Mötuneyti
  • Öflugt starfsmannafélag

Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

– Umsóknarfrestur er til og með 24. apríl 2024

– Öllum umsóknum þarf að fylgja ferilskrá

– Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál

– Öllum umsóknum verður svarað