Art Director

Hvíta húsið 26. Feb 2021 Fullt starf

Við leitum að Art Director með fullt af reynslu og hugmyndum til að stýra vinnu fyrir eitt stærsta fyrirtæki landsins. Þarf að vera framúrskarandi hönnuður með auga fyrir smáatriðum og heildarsvip, flinkur í teymisvinnu, framsýnn og jafnvígur á stafrænar og kjötrænar hliðar veruleikans.

Hvíta húsið er framsækin og rótgróin auglýsingastofa með langa sögu og áform um að eiga glæsta framtíð. Við erum Auglýsingastofa ársins, erum jafnlaunavottuð og svo erum við líka Fyrirtæki ársins hjá VR. Hjá okkur ríkir frábær starfsandi, metnaður og fagmennska.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Látið í ykkur heyra með því að senda okkur línu á starf@hvitahusid.is. Ferilskrá og portfolio mega gjarnan fylgja með.

Fullum trúnaði heitið. Umsóknarfrestur er til og með 8. mars.