Cloud Engineer

WOW air 15. Jan 2017 Fullt starf

Við leitum nú að viðbót við upplýsingatækniteymið okkar vegna fyrirhugaðra verkefna í skýjainnleiðingu WOW air og fleiri spennandi verkefna. Um krefjandi og áhugavert starf er að ræða og leitum við að einstaklingi sem getur haft mörg járn í eldinum á sama tíma.

HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐARSVIÐ:

  • Rekstur miðlara í skýjaumhverfi (AWS og vCloud)
  • Rekstur gagnagrunna í skýjaumhverfi (AWS og vCloud)
  • Afritun miðlara og gagnagrunna
  • Uppfærsla miðlara og gagnagrunna
  • Upplýsingaöryggi og varnir gegnum ógnum á netinu
  • Almennur rekstur í upplýsingatækni

HÆFNI, ÞEKKING OG REYNSLA SEM STARFIÐ KREFST:

  • B.S. í verkfræði eða tölvunarfræði eða umfangsmikil starfsreynsla á sviðinu
  • Reynsla af kerfisstjórnun sýndarumhverfa (t.d. VMware, HyperV eða XEN/KVM)
  • Reynsla af rekstri netkerfa, gagnagrunna og notkun afritunarlausna
  • Reynsla af öryggismálum í upplýsingatækni
  • Haldgóð þekking á skýjaumhverfum (s.s. AWS, Azure eða Google Cloud)
  • Þekking á Windows Server og Linux stýrikerfum
  • Þekking á MS SQL, MySQL og PostgreSQL gagnagrunnum er kostur
  • Þekking á afritunarkerfum á borð við Veeam er æskileg
  • Þekking á Active Directory, DNS og DHCP
  • Afburða samskiptahæfni
  • Hæfni að geta verið með mörg járn í eldinum á sama tíma

Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

AÐRAR UPPLÝSINGAR

WOW air er brosmilt lággjaldaflugfélag með það að markmiði að bjóða ávallt upp á lægstu fargjöldin til og frá Íslandi. Flugfélagið hefur vaxið mjög ört á skömmum tíma og við hlökkum til að efla samkeppni í flugi enn frekar á komandi árum með nýjum og spennandi áfangastöðum. Við leggjum mikið upp úr því að hafa gaman af því sem við erum að gera, bæði á skrifstofunni og gagnvart gestum okkar. Hjá okkur starfa nú um 650 hörkuduglegir starfsmenn.

NÁNARI UPPLÝSINGAR

Frekari fyrirspurnir um störfin má senda á starf@wow.is.

Umsóknarfrestur til og með 30. janúar 2017