Verkefnastjóri – Hugbúnaðarþróun

Libra ehf 18. Sep 2017 Fullt starf

Verkefnastjórnun – Fjárfestingabankalausnir

Starfssvið

  • Verkefnastjórnun við þróun á Libra hugbúnaði á fjárfestingabankasviði
  • Þátttaka í greiningu og hönnun á þróun Libra hugbúnaðar
  • Þátttaka í innleiðingu Libra hugbúnaðar hjá viðskiptavinum
  • Þátttaka í stöðugri mótun gæðakerfis

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á sviði tölvunarfræða eða sambærileg menntun
  • Reynsla af verkefnastjórnun hugbúnaðarverkefna
  • Menntun á sviði verkefnastjórnunar er kostur
  • Þekking og/eða reynsla af hugbúnaðargerð fyrir fjármálamarkað er kostur
  • Þekking á Libra hugbúnaði er kostur
  • Öguð og skipulögð vinnubrögð
  • Framúrskarandi samskiptafærni, sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni

Libra er ört vaxandi hugbúnaðarhús með um 40 manns í vinnu við að leysa skemmtileg og krefjandi verkefni fyrir viðskiptavini okkar.

Við höfum á undanförnum 20 árum verið leiðandi í smíði hugbúnaðar fyrir íslenskan fjármálamarkað en Libra hugbúnaður er í notkun hjá flestum fyrirtækjum og stofnunum á þeim markaði.

Hjá okkur muntu fást við krefjandi verkefni í samhentum hópi sérfræðinga sem leggur áherslu á gott skipulag og stöðugar umbætur.

Við erum með ánægt og hæft starfsfólk og vinnum náið með viðskiptavinum okkar.

Libra ehf. hefur undanfarin tvö ár verið á meðal efstu fyrirtækja á lista VR yfir Fyrirtæki ársins og hlotið titilinn Fyrirmyndarfyrirtæki auk þess sem styrkleikamat Creditinfo hefur skilað okkur titlinum Framúrskarandi fyrirtæki undanfarin sex ár.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Starfsumsókn og ferilskrá sendist á robert@librasoft.is fyrir 30.9.2017. Nánari upplýsingar eru fúslega veittar í síma 595-8760. Við bendum einnig á frekari upplýsingar og umsóknarform á vef okkar: www.librasoft.is