Vefstjóri

Penninn Eymundsson 7. Apr 2017 Fullt starf

Vegna aukinna umsvifa í vefverslun óskar Penninn Eymundsson eftir kraftmiklum og hugmyndaríkum vefstjóra. Nýlega fór einnig í loftið fyrsta útgáfa af nýjum vef Pennans, en vefurinn hefur verið endurhannaður og smíðaður frá grunni í nýju vefumsjónarkerfi.

Starfssvið:

  • Umsjón og þróun með innri og ytri vefjum fyrirtækisins
  • Umsjón með leitarvélabestun (SEO) og auglýsingum á leitarvélum
  • Umsjón með vefmælingum
  • Önnur tilfallandi vefverkefni

Hæfniskröfur:

  • Brennandi áhugi á vefmálum
  • Mjög gott vald á íslensku og færni í framsetningu á efni fyrir vefi
  • Reynsla af Google veftólum (Analytics, Adwords, Webmaster Tools) er mikill kostur
  • Þekking á DRUPAL vefumsjónarkerfi er mikill kostur
  • Reynsla og þekking á vefforritun og myndvinnslu er mikill kostur
  • Þekking á Navision er kostur
  • Frumkvæði í starfi, vandvirkni og góðir samskiptahæfileikar

Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Vinsamlegast sækið um starfið á https://www.penninn.is/is/laus-storf

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Halldórsdóttir, hildurh@penninn.is

Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl nk.