Vefforritari

Eldum rétt 17. Apr 2016 Fullt starf

Við óskum eftir metnaðarfullum einstaklingi með mikinn áhuga á vefþróun. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu í þróun veflausna bæði fyrir bakenda og framenda.

Starfssvið

  • Þróun ýmissa veflausna
  • Önnur störf tengd tæknimálum Eldum rétt

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun á sviði tölvunar- kerfis-, eða hugbúnaðarfræði eða mikla reynslu á þeim sviðum
  • Góð reynsla og þekking á bakendaforritun er æskileg
  • Reynsla og kunnátta á vefumsjónarkerfinu Drupal er kostur

Aðrar upplýsingar

Eldum rétt er matvælafyrirtæki sem sérhæfir sig í að afhenda fersk hráefni í réttum hlutföllum þannig að fólk geti eldað heima með sem minnstri fyrirhöfn. Öll sala fer fram á heimasíðu fyrirtækisins eldumrett.is og er því mjög mikilvægt að hún sé notendavæn bæði fyrir viðskiptavini og starfsfólk.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Kristófer Júlíus Leifsson, kristofer@eldumrett.is, 571-1855.

Umsóknarfrestur

Það verður ráðið í þessa stöðu þegar réttur einstaklingur er fundinn. Það er því ekki um eiginlegan umsóknarfrest að ræða heldur eru umsækjendur kallaðir inn eftir því sem við á og auglýsingin tekin niður þegar búið er að ráða í stöðuna.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsóknir skulu berast með því að fylla út umsóknarform á eldumrett.is/storf