Sérfræðingur í vefforritun og vefumsjón (DevOp)

Hagstofa Íslands 31. Aug 2016 Fullt starf

Starfið felst í rekstri og þróun aðalvefsíðu Hagstofu Íslands ásamt öðrum sértækum tólum og vefsíðum. Starfsmaðurinn mun annast hugbúnaðarlausir, þá sérstaklega fyrir vefinn. Í starfinu felst ábyrgð á rekstri undirliggjandi stýrikerfa, hugbúnaðarþróun og aðstoð við tæknilega framsetningu.

HÆFNISKRÖFUR

  • Geta til að sökkva sér í og leysa upplýsingatæknivandamál

  • Reynsla og þekking á almennt viðurkenndum hugbúnaðarþróunarvenjum (s.s. hugbúnaðarprófanir og útgáfustýringu)

  • Reynsla af hugbúnaðarþróun, sér í lagi fyrir vef

  • Þekking á helstu öryggisógnum upplýsingakerfa er æskileg

  • Þekking og reynsla af uppsetningu og rekstri stýrikerfa fyrir netþjóna er æskileg

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi er kostur

  • Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar

Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytisins og hlutaðeigandi stéttarfélags

Hagstofa Íslands er miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar á Íslandi. Hlutverk Hagstofunnar er að vinna hlutlægar hagskýrslur, hafa forystu um samhæfingu hagtalna, stunda rannsóknir og stuðla þannig að upplýstri umræðu og faglegum ákvörðunum. Nánari upplýsingar má finna á www.hagstofa.is


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsóknarfrestur er til og með 5. september 2016 og skulu umsóknir berast til: Starfsumsókn, Borgartúni 21a, 150 Reykjavík eða rafrænt á netfangið starfsumsokn@hagstofa.is.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknafrestur rennur út.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Hauksdóttir í síma 5281000.