SÉRFRÆÐINGAR Á SVIÐI KERFISÞJÓNUSTU

Endor ehf 27. Jan 2022 Fullt starf

SÉRFRÆÐINGAR Á SVIÐI KERFISÞJÓNUSTU

Við erum að leita að öflugum sérfræðingum með góða þekkingu og reynslu af rekstri upplýsingatækniumhverfa. Ef þú hefur brennandi áhuga á tækni og þróun og vilt vinna hjá framsæknu tæknifyrirtæki þá viljum við fá þig í okkar lið.

Endor er ungt og kraftmikið þjónustu- og ráðgjafafyrirtæki í upplýsingatækni. Hjá félaginu starfar reynslumikið teymi sem hefur vaxið hratt á innlendum og erlendum mörkuðum.
Endor leitar að metnaðarfullum einstaklingum með ríka þjónustulund sem búa yfir faglegum vinnubrögðum, liprum samskiptum og vinna vel undir álagi.

STARFSSVIÐ:

Í starfinu felst ráðgjöf, hönnun, úttektir, innleiðingar á vél- og hugbúnaði, kerfisþjónusta og rekstur á upplýsingatækniumhverfi viðskiptavina, tengdum lausnum og samhæfing þeirra.

HÆFNISKRÖFUR:

  • Víðtæk tækniþekking sem nýtist í starfi
  • Góð reynsla af rekstri upplýsingakerfa
  • Mjög góð þekking á Windows stýrikerfum, bæði server og client
  • Þekking á Linux stýrikerfum og netrekstri
  • Rík öryggisvitund og öguð vinnubrögð
  • Metnaður til að ná árangri og vilji til að tileinka sér nýjungar
  • Krafa um stundvísi, heiðarleika og lipur samskipti

Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsóknarfrestur er til og með 12. febrúar nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnar Guðjónsson, gunni@endor.is.