Öflugur forritari

Borgun 17. May 2016 Fullt starf

Borgun leitar að öflugum .NET forritara

Borgun er leiðandi fjármálafyrirtæki í þróun og hagnýtingu lausna á sviði rafrænnar greiðslumiðlunar. Við leitum að öflugum .NET forritara á Upplýsingatæknisvið, sem getur tekið að sér fjölbreytt verkefni í öllum lögum okkar lausna (e. full stack developer).

Hæfniskröfur:

  • Háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði eða sambærileg menntun.

  • Öflugur forritari sem getur leyst verkefni í öllum lögum okkar lausna (full stack developer).

  • Mjög góð þekking og reynsla af forritun í C#, ASP.NET, WCF, WPF, HTML5, CSS3,
    JavaScript, JSon/REST, og MS SQL.

  • Reynsla af innleiðingu og notkun TFS og Git er kostur, þar með talið uppsetningu
    sjálfvirkra útgáfuferla.

  • Góð þekking á IIS og SQL Server.

  • Þekking og reynsla af Agile (Kanban / Scrum) aðferðafræði er æskileg.

  • Skipulögð og öguð vinnubrögð.

Helstu verkefni:

  • Greining, hönnun, þróun og innleiðing greiðslulausna, þjónustuvefs og annarra lausna
    fyrir seljendur í viðskiptum við Borgun.

  • Samþætting við grunnkerfi Borgunar.

  • Þróun og innleiðing samþættingar- og einingaprófa.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurjón Þráinsson, þróunarstjóri, í síma 859 7969. Umsóknum skal skila á vef Borgunar, https://www.borgun.is. Umsóknafrestur er til og með 31. maí.