KORTA – Vörustjóri (PO)

KORTA 25. Jan 2017 Fullt starf

Vegna aukinna umsvifa leitum við að kraftmiklum vörustjóra (e. Product Owner). Hlutverk vörustjóra er að taka ábyrgð á verkefnum sem eru unnin á hugbúnaðarsviði, framvindu þeirra og gæðum fyrir viðskiptavini og notendur.

Á hugbúnaðarsviði KORTA starfar metnaðarfullt starfsfólk sem smíðar greiðslukerfi sem gerir fólki um allan heim kleift að eiga viðskipti við þúsundir fyrirtækja á degi hverjum.

Hugbúnaðarteymi KORTA notast við Agile verkstýringu, ýmist Scrum eða Kanban. Lögð er áhersla á stöðugar endurbætur og vönduð vinnubrögð.

Helstu verkefni

  • Vinna með með teymi og notendum að þarfagreiningu og skilgreiningu á vöru.
  • Vinna markvisst með teymi að útgáfu á góðum hugbúnaði.
  • Forgangsröðun verkefna í samráði við notendur.
  • Vinna vöru frá hugmynd til enda afurðar.
  • Vinna með samstarfsfólki að stöðugum endurbótum á verklagi.

Hæfniskröfur

  • Reynsla og áhugi á vörustjórnun í hugbúnaðargerð.
  • Framúrskarandi hæfni til þess að vinna í hóp.
  • Bachelor gráða í tölvunarfræði eða sambærileg menntun.
  • Þekking á Agile verkstýringu
  • Leiðtogahæfni

KORTA er færsluhirðir sem starfað hefur á fyrirtækjamarkaði frá árinu 2002. Upplýsingatækni er hornsteinn starfseminnar. Starfsmenn KORTA eru 43 talsins og lögð er rík áhersla á gott og skemmtilegt starfsumhverfi.

Umsókn sendist á starf@korta.is fyrir 6. febrúar 2017. Umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gert er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsókn sendist á starf@korta.is Umsókn fylgi starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem kemur fram hæfni og kunnátta í starfið.