Kerfisstjóri

Hagstofa Íslands 4. Apr 2017 Fullt starf

Hagstofa Íslands leitar eftir kerfisstjóra til starfa. Starfið felst í rekstri og áframhaldandi uppbyggingu á tölvuumhverfi Hagstofunnar. Kerfisstjóri mun sinna rekstri netþjóna og fjölbreyttra kerfislausna sem eru nauðsynlegar daglegum rekstri Hagstofunnar auk þess að koma að rekstri útstöðva og þjónustu við starfsmenn.
Mikilvægt er að viðkomandi hafi áhuga á að vinna í hóp og eigi auðvelt með að starfa með öðrum.

Menntunar- og hæfniskröfur

• Reynsla af rekstri tölvukerfa
• Þekking á helstu öryggisógnum upplýsingakerfa
• Þekking á sýndarumhverfum fyrir tölvurekstur
• Þekking og reynsla af rekstri vélbúnaðar fyrir útstöðvar
• Þekking og reynsla af uppsetningu og rekstri GNU/Linux og Microsoft Windows stýrikerfa er æskileg
• Þekking og reynsla af vöktunarkerfum og samskipanastjórnunartólum (e. configuration management tools) er æskileg
• Háskólapróf í tölvunarfræði, kerfisfræðimenntun eða önnur sambærileg menntun er kostur
• Skipulögð og öguð vinnubrögð
• Þjónustulund, færni í mannlegum samskiptum og samstarfshæfni
• Hreint sakavottorð


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Um er að ræða fullt starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru skv. kjarasamningi fjármálaráðuneytisins og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 18.4.2017. Umsóknir skulu sendar á eftirfarandi póstfang: Hagstofa Íslands, starfsumsókn, Borgartúni 21a, 150 Reykjavík. Einnig má senda umsóknir rafrænt á netfangið starfsumsokn@hagstofa.is.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Hauksdóttir í síma 5281000.

Hagstofa Íslands er miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar á Íslandi. Hlutverk Hagstofunnar er að vinna hlutlægar hagskýrslur, hafa forystu um samhæfingu hagtalna, stunda rannsóknir og stuðla þannig að upplýstri umræðu og faglegum ákvörðunum. Nánari upplýsingar má finna á www.hagstofa.is