Java forritari

Íslensk erfðagreining 25. Aug 2016 Fullt starf

Hjá Íslenskri erfðagreiningu eru rekin umfangsmikil upplýsingakerfi sem halda utan um söfnun á ýmiss konar líf- og læknisfræðilegum mæligögnum og í kjölfarið vinna úr þeim upplýsingar sem nýtast öðrum sérfræðingum fyrirtækisins til að finna tengsl erfðabreytileika við sjúkdóma.

Núna erum við að leita að hugbúnaðarsérfræðingum til að styrkja þau teymi sem þróa og reka þessi kerfi.

Við viljum gjarnan tala við þig ef þú hefur áhuga á að vinna með okkur og hefur áhuga á eða reynslu af forritun í Java.

Hæfniskröfur:
Háskólamenntun í tölvunarfræði eða skyldum greinum, eða sambærileg reynsla.
Þekking á sql er kostur.
Þekking á scrum/agile er kostur.
Þekking á sameindalíffræði eða erfðafræði er kostur.

Umsóknarfrestur til 12.september 2016.


Sækja um starf