Hugbúnaðarþróun – greiðslukerfi

KORTA 21. Aug 2016 Fullt starf

Hugbúnaðarteymi KORTA smíðar greiðslukerfi sem gerir korthöfum um allan heim kleift að eiga viðskipti við þúsundir fyrirtækja, innlend sem erlend, á degi hverjum. Mikil nýsmíði er á hugbúnaði og mörg krefjandi verkefni eru í gangi sem góðir forritarar kunna að meta. Við notum SCRUM aðferðarfræðina og leggjum áherslu á sífelldar endurbætur og vönduð vinnubrögð. Lögð er áhersla á að starfsmenn þróist áfram í starfi og staðni ekki. Hugbúnaðarteymið tekur þátt í að skoða og velja framtíðartækni fyrir vöruþróun fyrirtækisins.

Við leitum að forriturum inn í teymið okkar.

Sérhæfingin er

  • Forritun og vöruþróun á greiðslukerfi
    • Hæfniskröfur

      • Hæfni í hlutbundnu forritunarmáli
      • Hæfni í mannlegum samskiptum, sjálfstæði og sterkar skoðanir
      • Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, verkfræði eða raunvísinda er kostur en reynsla af forritun getur vegið þungt
      • Reynsla og þekking á greiðslukerfum er kostur
        • KORTA er færsluhirðir sem starfað hefur á fyrirtækjamarkaði frá árinu 2002. Upplýsingatækni er hornsteinn starfseminnar. Starfsmenn eru 30 talsins og lögð er áhersla á gott og skemmtilegt starfsumhverfi.


          Sækja um starf
          Upplýsingar fyrir umsækjendur

          Umsókn sendist á starf@korta.is

          Umsókn fylgi starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem kemur fram hæfni og kunnátta í starfið.