Hugbúnaðarsérfræðingur í innleiðingarteymi

MyTimePlan 6. Sep 2016 Fullt starf

MyTimePlan leitar að öflugum hugbúnaðarsérfræðingi.

Þú yrðir hluti af hæfileikaríku hugbúnaðarteymi og fengir tækifæri til að vinna náið með stjórnendum hjá mörgum af leiðandi fyrirtækjum landsins.

Sem hugbúnaðarsérfræðingur í innleiðingarteymi ertu í lykilhlutverki við að laga MyTimePlan að ólíkum þörfum viðskiptavina og hámarka hagnað þeirra af notkun.

Til að ná árangri í starfinu þarftu að mastera virkni MyTimePlan hugbúnaðarins, hafa framúrskarandi rökhugsun, góða samskiptahæfileika, vera skipulagður og drífandi í að koma hlutum í framkvæmd og tryggja árangursríka notkun MyTimePlan.

MyTimePlan er leiðandi kerfi í Skýinu fyrir tíma- & kostnaðarstjórnun sem auðveldar stjórnendum stýringu mikilvægustu auðlindar fyrirtækisins, þ.e.; mannauðnum og stuðlar að auknum lífsgæðum og framleiðni. Í dag nota kerfið yfir 20.000 starfsmenn hjá yfir 100 fyrirtækjum og stofnunum.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Ef þú telur þig réttu manneskjuna í starfið þá endilega sendu okkur umsókn og ferilskrá á netfangið job@mytimeplan.com. Fullum trúnaði er heitið.