Grafískur hönnuður

Bílaumboðið Askja ehf 15. Sep 2016 Fullt starf

Bílaumboðið Askja ehf. óskar eftir að ráða öflugan grafískan hönnuð í tímabundið starf á markaðssviði fram yfir áramót.

Askja er framsækið þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu og þjónustu á Mercedes-Benz og Kia bifreiðum. Boðið er upp á krefjandi vinnuumhverfi í hópi metnaðarfullra og hæfra einstaklinga.

Ábyrgð og verkefni:

  • Hönnun og uppsetning á markaðsefni fyrir vef og prent
  • Gerð auglýsingaefnis fyrir rafrænar herferðir
  • Myndvinnsla og umbrot
  • Önnur tilfallandi verkefni á markaðssviði

Hæfniskröfur:

  • A.m.k. þriggja ára reynsla af sambærilegu starfi er skilyrði
  • Góð kunnátta í myndvinnsluforritum, m.a. InDesign, Photoshop og Illustrator, er skilyrði
  • Góð kunnátta í HTML 5 og CSS er skilyrði
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Þekking á vefumsjónarkerfum er kostur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Brennandi áhugi á, og gott auga fyrir, hönnun
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og áreiðanleiki
  • Hæfni í mannlegum samskiptum

Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Starfstímabilið er frá 1. október 2016 - 31. janúar 2017. Möguleiki á áframhaldandi starfi að því tímabili loknu. Einungis reyklausir einstaklingar koma til greina. Vinsamlega sækið um starfið á heimasíðu Öskju, www.askja.is. Nánari upplýsingar um starfið veitir Erla Sylvía Guðjónsdóttir, gæða- og mannauðsstjóri Öskju, á netfanginu atvinna@askja.is