Grafískur hönnuður

A4 5. Aug 2016 Fullt starf

A4 leitar af öflugum grafískum hönnuði í hópinn, um er að ræða fullt starf. Starfið felur í sér fjölbreytt viðfangsefni. Áhugi á markaðsmálum nauðsynlegur sem og að fylgjast með nýjungum í faginu.

Helstu verkefni eru :

  • Hönnun á auglýsinga- og kynningarefni fyrir vef og prent.
  • Gerð fréttabréfa fyrir viðskiptavini, jafnt fyrir vef og prent.
  • Hönnun á útliti fyrir vef A4, í samvinnu við vefstjóra.
  • Myndvinnsla og umbrot.
  • Efni fyrir verslanir A4 .

Við leitum að einstaklingi með:

  • Menntun og reynslu á sviði grafískrar hönnunar.
  • Góða íslenskukunnáttu, mikill kostur er að geta skrifað texta.
  • Reynsla af ljósmyndun og myndvinnslu er kostur.
  • Hæfileika til að vinna sjálfstætt og með næmt auga fyrir smáatriðum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og vilja til að vinna í hóp.
  • Hæfileika til að hugsa út fyrir boxið og leita nýrra lausna.

Umsóknarfrestur er til og með 14. ágúst 2016

A4 er framsækið fyrirtæki og leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki. Hjá fyrirtækinu starfa um 100 starfsmenn.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Tekið er á móti umsóknum á netfangið alfa@a4.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir mannauðsstjóri, Alfa Lára Guðmundsdóttir, í síma 580-0000.