Gagnagrunnssérfræðingur

Hagstofa Íslands 24. Jan 2017 Fullt starf

Starfið felst í gagnagrunnsþróun og viðhaldi gagnagrunnskerfa Hagstofu Íslands. Starfsmaðurinn mun sinna hönnun á gagnagrunnsskipulagi miðað við þarfir sérfræðinga í hagskýrslugerð, þróun á sjálfvirkum innlestrarferlum fyrir gagnagrunna ásamt almennri hugbúnaðarþróun.

HÆFNISKRÖFUR
• Geta til að sökkva sér í og leysa upplýsingatæknivandamál
• Reynsla og þekking á almennt viðurkenndum venjum í hugbúnaðarþróun
• Þekking á gagnagrunnshögun (e. database architecture)
• Þekking og reynsla af vélrænu námi (e. machine learning) er æskileg
• Þekking á helstu öryggisógnum upplýsingakerfa er æskileg
• Þekking og reynsla af ólíkum gagnagrunnslausnum er kostur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi er kostur
• Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar

Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytisins og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 6. febrúar 2017 og skulu umsóknir berast til: Starfsumsókn, Borgartúni 21a, 150 Reykjavík eða rafrænt á netfangið starfsumsokn@hagstofa.is.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknafrestur rennur út.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Hauksdóttir í síma 5281000.

Hagstofa Íslands er miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar á Íslandi. Hlutverk Hagstofunnar er að vinna hlutlægar hagskýrslur, hafa forystu um samhæfingu hagtalna, stunda rannsóknir og stuðla þannig að upplýstri umræðu og faglegum ákvörðunum. Nánari upplýsingar má finna á www.hagstofa.is


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsóknarfrestur er til og með 6. febrúar 2017 og skulu umsóknir berast til: Starfsumsókn, Borgartúni 21a, 150 Reykjavík eða rafrænt á netfangið starfsumsokn@hagstofa.is.