Forritari

CEO HUXUN 30. Jun 2016 Fullt starf

FORRITARI
– Óskum eftir að ráða kraftmikinn og metnaðarfullan einstakling sem hefur brennandi áhuga á forritun. Ef þú vilt starfa á líflegum vinnustað og vera hluti af þróun á frumkvöðla lausn sem stefnt er með á erlenda markaði þá gæti þetta verið starfið fyrir þig.

STARFSSVIÐ
– Full-stack forritari eða minnsta kosti framendaforritari

HÆFNISKRÖFUR
– Þekking og reynsla af JavaScript, CSS, HTML og C#
– Þekking og reynsla af AngularJS og einhverju CMS eins og t.d. WordPress er kostur
– Nám í tölvunarfræði er kostur
– Vera lausnarmiðaður og hafa frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
– Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum

AÐRAR UPPLÝSINGAR
– CEO HUXUN er frumkvöðlafyrirtæki staðsett í Innovation House Eiðistorgi. Fyrirtækið framleiðir hugbúnaðinn HR-Monitor sem nú þegar hefur þúsundir notenda og er nýtt af tugum íslenskra fyrirtækja. Félagið er í eigu stofnenda og fjárfestingarfélags og hefur verið styrkt af Tækniþróunarsjóði og fleirum til frekari tækniþróunar og sóknar á erlenda markaði.
Ef þú leitar að spennandi verkefnum í frumkvöðlageiranum, tækifæri til að þróa vöru sem stefnt er með á erlenda markaði, vilt vinna í góðu vinnuumhverfi og með hressum vinnufélögum, þá finnurðu það hjá okkur.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

NÁNARI UPPLÝSINGAR Nánari upplýsingar veitir Gunnhildur Arnardóttir CEO, gunnhildurarnar@ceohuxun.is og Daníel Sigurðsson SYSTEM MANAGER, danielsig@ceohuxun.is.

UMSÓKNARFRESTUR Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 11.júlí n.k. og óskast umsóknir sendar til Gunnhildar Arnardóttir á netfangið gunnhildurarnar@ceohuxun.is