Deildarstjóri þjónustuvers

Stilling hf. 15. Jun 2016 Fullt starf

Við leitum að öflugum einstaklingi til að þróa og leiða nýtt þjónustuver sem við tókum í notkun í vor og hefur þegar fengið frábærar viðtökur. Vinnutími er frá kl 08:00 til 17:30. Um framtíðarstarf er að ræða.

Starfssvið

  • Vera í forsvari og bera ábyrgð á þjónustuveri og rekstri þess.
  • Semja vinnureglur og ferla þjónustuvers.

  • Tryggja viðskiptavinum okkar bestu mögulega þjónustu.

  • Símsvörun og samskipti í gegnum tölvupóst.

  • Afgreiðsla fyrirspurna og almenn þjónusta við viðskiptavini.

  • Skráning og eftirfylgni pantana.

  • Önnur tilfallandi verkefni.

Hæfniskröfur

  • Góð almenn tölvukunnátta (word, excel, powerpoint).

  • Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð, rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Reynsla af afgreiðslu á varahlutum eða reynsla í bifvélavirkjun kostur.

  • Þekking og áhugi á bílum er kostur.

Sækið um hér


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Vinsamlegast fyllið út umsóknina á slóðinni sem fylgir auglýsingunni.